Málverk eftir Ingibjörgu Hauksdóttur
Málverk eftir Ingibjörgu Hauksdóttur

Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Sýningar

Artótek | Naglinn: Án titils

Mánudagur 3. janúar 2022 - Mánudagur 28. febrúar 2022

Ótitlað málverk eftir Ingibjörgu Hauksdóttur verður til sýnis á Naglanum í Borgarbókasafninu Sólheimum í janúar og febrúar. Verkið er fengið að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.

Ingibjörg Hauksdóttir hefur stundað listnám á meginlandi Evrópu, vesturströnd Bandaríkjanna og í Reykjavík ásamt því að vera lærður jógakennari. Hennar markmið er að skapa list sem nærir sálina.

Kaupandinn á síðasta sýningarverki Naglans valdi verkið og sagði að það hefði hrifið sig strax, litirnir væru svo fallegir og mikil gleði sem fælist í því.

Naglinn er heitið á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum og er þetta 8. sýningin í röðinni. Hver sýning samanstendur af einu listaverki. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja, úr Artótekinu, hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.

Verkið er hægt að leigja á 5.000 kr. á mánuði eða kaupa á 160.000 kr.

Nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn og verkið á https://artotek.is


Frekari upplýsingar veita:

Magnús Örn Thorlacius
magnus.orn.thorlacius@reykjavik.is | s. 411 6160

Hólmfríður Gunnlaugsdóttir
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112

 

Sjá viðburð á Facebook
Opnunartími á Borgarbókasafninu Sólheimum