Linus Orri flytur þjóðlagatónlist ásamt Ragnheiði Gröndal
Fjöltónlistarmaðurinn Linus Orri stingur kvæðalögum í samband og hrærir í vikivökum með fulltingi söngkonunnar alkunnu, Ragnheiðar Gröndal.
Linus Orri Gunnarsson Cederborg leikur á fjölda hljóðfæra, sum þeirra hefur hann búið til sjálfur, en hann starfar sem handverksmaður. Hann mætir á tónleikana með nýsmíðuð hljóðfæri úr tilraunastofunni sinni.
Linus Orri hefur verið mjög virkur í þjóðlagatónlistinni á síðustu árum. Hann situr í stjórn Kvæðamannafélgasins Iðunnar, er einnig einn skipuleggjenda þjóðlagahátíðarinnar Vöku í Reykjavík og heldur utan um mánaðarleg þjóðlagasamspilskvöld á Kex Hostel.
Tónleikarnir eru haldnir með styrk frá Hverfissjóði Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar veitir:
Justyna Irena Wilczynska
justyna.irena.wilczynska@reykjavik.is