Anime klúbbur Borgarbókasafnið
Anime klúbbur Borgarbókasafnsins

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 18:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni

Klúbbur | Fyrir alla Anime aðdáendur 13-16 ára Gerðuberg

Miðvikudagur 3. nóvember 2021

Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.

Við hittumst í Gerðubergi og erum alltaf eitthvað að bralla. Það er til dæmis hægt að gera merki, spila borðspil, cosplay, spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, teiknismiðjur, kynningar á Anime bókum og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!

Leiðbeinendur klúbbsins eru frá Íslenska myndasögusamfélaginu og Borgarbókasafninu og við leggja okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.

Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, en vegna Covid er skráning nauðsynleg. Vinsamlegast sendið: Nafn, netfang og símanúmer til holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is

Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir Verkefnastjóri
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is