Lyklaborð með fjólublárri lýsingu

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 14:30
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Ungmenni
Skapandi tækni

Verkstæðin | Streymismiðja

Sunnudagur 8. maí 2022

Streymisheimurinn er gríðarstór. Þar er hægt að finna streymi af tölvuleikjum, djúpum samræðum, saumaskap eða jafnvel af matartíma fólks! Tugmilljónir manna horfa á streymi á degi hverjum en sú tala hækkar stöðugt. Langar þig að læra að streyma áhugamálinu þínu? Skema í HR sýnir þér hvernig þú átt að nota Twitch og OBS til þess að streyma. 

ATH. Smiðjan er í boði fyrir 13 ára og eldri. Fyrir nemendur undir 18 ára aldri þarf ábyrgðaraðili að fylgja með í byrjun smiðjunnar til þess hjálpa þeim að stofna aðgang, samþykkja skilmála Twitch og fá stutta fræðslu um heilbrigða og örugga notkun á streymi í gegnum Twitch fyrir bæði ábyrgðaraðila og nemendur.  

Þegar því er lokið þurfa ábyrgðaraðilar ekki að vera til staðar fyrir framhaldið nema þau vilji.  

Skráning fer fram í gegnum skráningarformið hér að neðan!

Nánari upplýsingar veitir:

Agnes Jónsdóttir I Bókavörður
agnes.jonsdottir@reykjavik.is I 411-6250/411-6230