Sumarlestur | Lestrarhetjan

Lestrarhetjan

 

Athugið, sumarlesturinn hefst í júní þegar skólanum lýkur.

Lestraráskorun og ofurhetjuspil

Í sumar hvetjum við öll til að setja á sig ofurhetjuskikkjuna og taka þátt í Sumarlestri almenningsbókasafnanna. Lestur veitir ofurkraft, því meira sem þú lest, því meira lærir þú og skilur. 

Á næsta Borgarbókasafni eða öðru almenningsbókasafni færðu sumarlestursheftið. Það inniheldur 6 lestraráskoranir og skemmtilegt ofurhetjuspil. Í hvert sinn sem áskorun lýkur kvittar foreldri/forráðamaður og lestrarhetjan heimsækir bókasafnið með staðfestinguna til þess að fá límmiða til að líma á spilaborðið.

lestrarhetjan með borðspilið

Lestrarhetjan til bjargar í Skarkalabæ

Spilaborðið er mynd af Skarkalabæ. Í Skarkalabæ er allt í rugli! Það þarf að bjarga fólki og furðuverum úr bráðri hættu og það strax! Þú getur verið lestrarhetjan sem bjargar deginum með aðal ofurkraftinum, orðaforðanum! Spilið er samvinnuspil þar sem spilarar hjálpast að við að bjarga fólki og furðuverum í vanda. Spilarar skiptast á að vera hetjan á meðan hinir giska á hverjum/hverju lestrarhetjan ætlar að bjarga á myndinni.

Með hverjum límmiða sjáum við enn betur hvað það er sem er í gangi í Skarkalabæ. Þannig stækkar spilið með hverri lestraráskorun sem lestrarhetjan klárar í sumar.

Myndirnar eru eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og borðspilið er hannað af Steingerði Lóu Gunnarsdóttur. Hugmyndavinnan er unnin í samstarfi við vinnuhóp sem er skipaður af barnabókavörðum á almenningsbókasöfnum um allt land og er efnið gefið út af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Uppskeruhátíð sumarlestursins

Við fögnum frábærum árangri með veglegri uppskeruhátíð í Borgarbókasafninu Grófinni. Þau sem hafa safnað öllum 6 límmiðunum fá þátttökumiða fyrir sumarlestrarpottinn en síðasti séns til að skila inn miða er 16. ágúst til að eiga möguleika á að vera dreginn út í pottinum. Verður þú heppni þátttakandinn sem verður dreginn út og færð vinning á uppskeruhátíðinni? 

Ekki örvænta þó þú náir ekki að safna öllum límmiðunum fyrir skólabyrjun. Það verður hægt að fá límmiða á veggspjaldið á meðan birgðir endast.

Gleðilegt ofurlestrar-sumar!
 

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146