BORGARBÓKASAFNIÐ

Annar vinningshafi sumarlestursins

Þórbjörn Orri Harðarson vinningshafi sumarlestur

Þórbjörn Orri Harðarson, 7 ára, er annar vinningshafinn í lestraráskorun Gúnda geithafurs.

Annar vinningshafi sumarlestursins í ár hefur verið dreginn út á Borgarbókasafninu. Að þessu sinni var það Þórbjörn Orri Harðarðson, 7 ára, sem var svo lánsamur og hlaut hann bókina Björgum Jörðinni – Jörðina okkar í verðlaun. Við tókum Þórbjörn Orra tali á safninu eftir að hann hafði fengið verðlaunin afhent.

Áttu þér uppáhaldsbók, Þórbjörn?
„Skólastjórinn [eftir Ævar Þór Benediktsson],“ svarar hann.

Hvaða bók mælirðu með?
Þórbjörn Orri hugsar sig um. „Þessari bók,“ segir hann síðan og réttir fram verðlaunin, bókina Björgum Jörðinni – Jörðin okkar.

Og hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í sumar?
„Fara til Spánar.“

Við óskum Þórbirni Orra innilega til hamingju og vonum að hann verði áfram duglegur að lesa í sumar.

Nánar um sumarlesturinn hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs