BORGARBÓKASAFNIÐ
Langar þig að slást í öflugan hóp verkefnastjóra í deild miðlunar og nýsköpunar hjá Borgarbókasafninu?
Staða kynningarstjóra er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur til og með 12. júlí.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kynningarstjóri stýrir og ber ábyrgð á verkefnum sem snúa að kynningu og markaðssetningu á þjónustu, viðburðadagskrá og fræðslu á vegum Borgarbókasafnsins. Hann leiðir ritstjórn kynningarmála auk teymis um kynningarmál með fulltrúum allra safna.
Helstu verkefni eru verkefnastýring, ritstjórn, textaskrif fyrir heimasíðu, samfélagsmiðla og fréttabréf og samskipti við starfsfólk, samstarfsaðila og fjölmiðla. Jafnframt kemur kynningarstjóri að þróun, skipulagningu og samhæfingu kynningar á öllum sérverkefnum safnsins.
Kynningarstjóri heyrir undir deild miðlunar og nýsköpunar og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins. Hann tekur þátt í að marka stefnu um verkefni á sínu sviði, með stuðningi og í samstarfi við deildarstjóra miðlunar. Í því felst m.a. að hafa frumkvæði að og innleiða ný verkefni eða verklag í samvinnu við stjórnendur, starfsfólk og samstarfsaðila og sjá um skipulagningu þeirra og framkvæmd.
Kynningarstjóri tekur á móti fyrirspurnum, veitir umsagnir og sinnir erindum er heyra undir málaflokkinn. Hann tekur einnig þátt í teymisvinnu þvert á svið og stofnanir Reykjavíkurborgar og samstarfi við fagaðila innanlands og utan.
Fríðindi í starfi
Hæfniskröfur
Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) og að lágmarki 2ja ára reynsla af stjórnun kynningar- og markaðsmála á sviði menningar og/eða reynsla af störfum í fjölmiðlum; Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) auk að lágmarki 5 ára starfs- og stjórnunarreynslu á ofangreindum sviðum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar hjá Borgarbókasafninu
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115