BORGARBÓKASAFNIÐ

Bókasafnsdagurinn: Lestur er bestur - á öllum aldri

lestur er bestur

Lestur er bestur – á öllum aldri er þema Bókasafnsdagsins 2026 sem er haldinn hátíðlegur í dag, 28. september. 

Markmið bókasafnsdagsins er tvíþætt:

  • Að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu.
  • Að vera dagur starfsmanna safnanna.

Síðustu ár hefur bókasafnsdeginum verið fagnað á Degi læsis, þann 8. september en í ár er dagurinn haldinn hátíðlegur mánudaginn 28. september, sem er alþjóðlegur dagur UNESCO um upplýsingaaðgengi.

Upplýsing, fagfélag á sviði bókasafns- og upplýsingafræða, heldur upp á daginn með Morgunkorni, dagskrá stuttra erinda, í glænýju bókasafni Hafnafjarðar. 

Höldum saman upp á bókasafnsdaginn og lítum við á bókasafninu okkar!

Frékari upplýsingar um daginn fá hér á heimasíðu Upplýsingar.