BORGARBÓKASAFNIÐ
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins.
Sunnnudaginn 8. mars 2026 á alþjóðlegum baráttudegi kvenna bauð Héraðsbókasafn Rangæinga til bókmenntagöngu með Margréti Guðjónsdóttur fyrrverandi skólabókaverði. Kvenréttindafélag Íslands og Borgarbókasafnið hönnuðu bókmenntagönguna sem byggir á því að velja nokkra lykilstaði og tengja þá við texta kvenna sem kalla fram ákveðin sjónarhorn.

Eftir einmuna blíðu í nánast allan vetur, skall á með leiðindarveðri, þrumum og eldingum, snjókomu og byl! Göngustjóra leist nú ekki á blikuna á sunnudagsmorgun en að hætti íslenskra kvenna var ákveðið að hætta ekki við. Það stytti upp og birti rétt fyrir klukkan 14 og var gönguveðrið frábært. 10 manns mættu í gönguna þar af 9 konur. Meðlimir í Bókaklúbbnum Skruddur tóku þátt og lásu texta ásamt öðrum göngukonum
Gangan byrjaði við Stórólfshvolskirkju og þar var lesin texti úr Dýralíf Auðar Övu. Margrét Guðjónsdóttir las.
Næsta stopp var við Heilsugæsluna, Hallveig Ragnarsdóttir las úr Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur.
Þá var genginn nokkur spotti og stoppað á Gamla róló. Þórunn Óskarsdóttir las texta úr Tímariti Máls og menningar 2. tölublaði 1945 um Sigríði frá Brattholti eftir Aðalbjörgu Sigurðardóttur.
Stoppað var við Afrekshug Nínu Tryggvadóttur og Anna Kristín Guðjónsdóttir las úr Þær fylgjast að inn í heiðurslaunaflokkinn eftir Soffíu Guðmundsdóttur sem birtist í 19. júní, 39. árgangi 1989, 1. tölublaði.
Gengin var Æskuslóð að Leikskólanum Öldunni en þar las Guðmunda Þorsteinsdóttir Sögur handa börnum úr bókinni Veisla undir grjótvegg eftir Svövu Jakobsdóttur.
Þá var komið að Íþróttahúsinu þar sem Freyja Friðriksdóttir las um sundkennslu stúlkna úr ræðu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur á bæjarstjórnafundi í Reykjavík.
Á bókasafninu var síðasta stopp en þar var lesinn texti um Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm.
Að göngulokum fengu göngufélagar kaffi og með því á bókasafninu og ræddu vel saman góða stund. Héraðsbókasafnið þakkar fyrir góða mætingu og gott veður. Einnig fá Margrét Guðjónsdóttir og Eyjólfur Hermann Sveinsson þakkir fyrir gott skipulag, frábæra framkvæmd og flotta skrásetningu.