
Bresku bókmenntaverðlaun kvenna fyrir bækur almenns efnis verða afhent samhliða verðlaunum fyrir skáldverk þann 11. júní næstkomandi í sumarveislu í Bedford Square Garden í London.
Tilkynnt var um stuttlista verðlaunanna þann 25. mars síðastliðinn.
Eftirfarandi bækur og höfundar prýða stuttlistann í ár:
The Finest Hotel in Kabul: A People’s History of Afghanistan eftir Lyse Doucet
Art Cure: The Science of How the Arts Transform Our Health eftir Daisy Fancourt
Artists, Siblings, Visionaries: The lives and loves of Gwen and Augustus John eftir Judith Mackrell
Hotel Exile: Paris in the Shadow of War eftir Jane Rogoyska
Mother Mary Comes to Me eftir Arundhati Roy
Nation of Strangers: Rebuilding Home in the 21st Century eftir Ece Temelkuran
Fyrri vinninghafar:
The Story of a Heart eftir Rachel Clarke (2025)
Doppelganger eftir Naomi Klein (2024)
Hér fyrir neðan má finna þau verkanna á listunum sem til eru á Borgarbókasafni og Rafbókasafninu. Einnig er þar að finna önnur verk eftir tilnefnda höfunda sem til eru í söfnunum.