Dreymir þig um að verða áskrifandi að alls konar flottum tímaritum?

Að geta sest í hægindastólinn eftir erilsaman dag og sökkt þér niður í nýjustu tímaritin um fræga fólkið, mat, tónlist eða tækni.
Nú er tækifærið!
Ókeypis aðgangur að tugum tímarita um allt milli himins og jarðar í boði á Rafbókasafninu!
Þú þarft einungis að eiga gilt bókasafnskort hjá Borgarbókasafninu eða öðrum aðildarsöfnum Rafbókasafnsins.
Fleigðu þér í stólinn góða og kíktu á úrvalið með því að smella á hlekkinn.
HÉR eru allar upplýsingar um Rafbókasafnið á einum stað.
Nánari upplýsingar um Rafbókasafnið veitir:
Rúnar Logi Ingólfsson Hafberg, verkefnastjóri safnkosts
runar.logi.ingolfsson.hafberg@reykjavik.is