BORGARBÓKASAFNIÐ

Bókaklúbbur í poka er þjónusta við notendur Borgarbókasafnsins. Notendur geta fengið sérstakan poka lánaðan sem inniheldur allt sem þarf til að halda bókaklúbb. Hvort sem það er fyrir vini, vinnustaði eða fjölskyldu er hægt að rúlla upp bókaklúbb með lágmarksfyrirhöfn. Eina sem þú þarft að gera er að velja poka, bjóða fólki og … jú, lesa bókina.
Hver poki inniheldur:
Listrænn stjórnandi er aðili eða stofnun (rithöfundar, listafólk, fræðafólk, sérfræðingar á bókasöfnum) sem Borgarbókasafnið hefur fengið til að velja bók í pokann. Listrænn stjórnandi ber ábyrgð á vali bókarinnar og skrifar stutt ávarp til klúbbsins, sem fylgir með í pokanum, þar sem hann segir frá vali sínu. Það er upplagt að hefja bókaklúbbinn með því að lesa ávarpið upphátt fyrir viðstadda.
Pokana má taka frá í afgreiðslu eða á netinu. Þeir pokar sem tilbúnir eru til frátektar eru eftirfarandi: