Finnst þér spennandi að búa til sögur? Ragnheiður Gestsdóttir leiðbeinir krökkum hvernig á að búa til krassandi glæpasögur með spennuþrunginni sögu og myndum. Smiðjan er fyrir börn fædd 2014, 2015 , 2016 og 2017 og stendur yfir í 4 daga, 15. -19. júní (ekki 17. júní) frá kl. 10-12. Skráning hefst 28. apríl kl. 13 á Abler. Hlekkurinn er á MIÐASALA Ragnheiður er glæpa- og barnabókahöfundur, myndlistarkona og kennari og hefur mikla reynslu af að vinna með börnum. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir bækur sínar. Nánari upplýsingar veitir: Sigrún Jóna Kristjánsdóttir, sérfræðingur sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is | 411 6160
Mánudagur, 15. júní 2026 – 10:00-12:00
Borgarbókasafnið Sólheimum
Sólheimar 23, 104 Reykjavík