Marta Björk, listamaður, mun leiða skemmtilega hreyfimynda smiðju fyrir áhugasama krakka. Í smiðjunni kynnumst við möguleikum stop motion hreyfimyndagerðar. Við skoðum hvernig er hægt að nota alls konar hluti í að búa til skemmtileg myndbönd og hvernig við getum búið til okkar eigin persónur til að leika í þeim. Tími: Smiðjan er dagana 15. og 16. júní á milli kl. 10:00-12:00 Aldur: Fyrir börn fædd 2014, 2015 og 2016 Opnað verður fyrir skráningu 28. apríl á Abler. Hlekkur er í MIÐASALA. Krakkarnir fá tækifæri til að búa til sína eigin brúðu og láta hana lifna við með stop motion hreyfimyndagerð. Eftir námskeiðið ættu allir að geta haldið áfram að búa til sín eigin stop motion myndbönd heima. Marta Björk Atladóttir er hreyfimyndagerðarkona og brúðusmiður. Hún lærði teiknimyndagerð í Leeds Arts University og er nemandi í listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Útskriftarmyndin hennar, Inked In, hlaut verðlaun fyrir hönnun frá Royal Television Society Yorkshire Awards.
Mánudagur, 15. júní 2026 – 10:00-12:00
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Úlfarsbraut 128, 113 Reykjavík