Lærum að umbreyta og bæta föt á skapandi hátt! Listakonan Eva Ísleifs leiðir smiðju þar sem ungmenni innsýn í sjálfbæra fatasköpun og leiðarlýsingu á hvernig er hægt að umbreyta og bæta föt á skapandi hátt. Þátttakendur vinna síðan að eigin flík. Notast verður við saumavélar og málningu. Smiðjan stendur yfir í tvo daga 2 - 3 júlí milli kl 13:00-15:00 Aldur: 2010, 2011, 2012 og 2013 Opnað verður fyrir skráningu á Abler 28. apríl. Hlekkurinn er á MIÐASALA. Grunnþekking í handavinnu er kostur en ekki nauðsynleg, þar sem aðferðirnar eru aðgengilegar og nýtast vel í áframhaldandi listsköpun og fatahönnun. Repüp er fatamerki eftir Evu Ísleifs. Nafnið Repüp er innblásið af enska hugtakinu Re-Purpose, sem vísar til endurnýtingar og þess að gefa hlutum nýtt hlutverk. Í hönnun sinni leggur Eva áherslu á sjálfbærni og hringrásarhagkerfi, þar sem hver flík er einstök og unnin með umhverfið að leiðarljósi. Nánari upplýsingar veitir: Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170
Fimmtudagur, 2. júlí 2026 – 13:00-15:00
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Gerðuberg 3, 111 Reykjavík