Finnst þér gaman að teikna? Komdu í teiknismiðju! Við munum gera alls kyns teikniæfingar, myndasögur, leika okkur og hafa gaman. Sumarsmiðjan verður að þessu sinni í boði fyrir börn fædd 2014-2017. Smiðjan verður 15. til 19. júní frá klukkan 10:00-12:00. Það verður frí 17. júní. Opnað verður fyrir skráningu 28. apríl kl. 13 á Abler. Blær Guðmundsdóttir teiknari og rithöfundur hefur teiknað í fjölda barnabóka. Hún hefur einnig áralanga reynslu af að kenna börnum að skrifa sögur og teikna í Svakalegu sögusmiðjunni, sem á aðsetur í Borgarbókasafninu og Bókasafni Mosfellsbæjar. Teikningar Blævar má m.a. finna í bókunum Sipp, Sippsippanipp og Sippnippanippsippsúrumsipp, Voðagerði: Lilja, Orð eru ævintýri, Holupotvoríur alls staðar!, Dreddfúlíur, flýið!, Kærókeppninni, Leyndardómum Valþjófsstaðahurðarinnar og öllum Stúfsbókunum. Verk Blævar hafa hlotið ýmsar tilnefningar s.s. til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar, Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Hagþenkisverðlauna og á Sögum - verðlaunahátíð barnanna fyrir myndlýsingar. Hún fékk FÍT-verðlaun fyrir teikningar í Sipp og hlaut Svakalega sögusmiðjan Vorvindaverðlaun IBBY á Íslandi fyrir framlag til barnamenningar. Nánari upplýsingar veitir: Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6230
Mánudagur, 15. júní 2026 – 10:00-12:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Spöngin 41, 112 Reykjavík