BORGARBÓKASAFNIÐ

Hin æsispennandi sumarlestursáskorun Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna, Gúndi geithafur og grasleitin mikla, heldur áfram, fyrir börn um land allt. Nú er nafn fjórða vinningshafans komið í ljós, en í þetta sinn var það Alexandra Cristea, 7 ára, sem var svo heppin að vera dregin út.
Við afhentum Alexöndru Cristeu bók í verðlaun og óskuðum henni innilega til hamingju og spurðum í leiðinni hvort hún ætti sér einhverja uppáhaldsbók?
„Harry Potter,“ svarar Alexandra Cristea, sem er auðheyrilega gefin fyrir ævintýrabækur.
Og hvar finnst henni best að lesa?
„Í sófanum með mömmu,“ svarar hún umhugsunarlaust og brosir.
Með þeim orðum kvöddum við Alexöndru Cristeu og vonum að hún verði dugleg að lesa í sumar.
Þess má geta að sumarlestraráskorunin stendur yfir til 20. ágúst þannig að enn er nægur tími til að taka þátt!
Allar nánari upplýsingar hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs