BORGARBÓKASAFNIÐ

Fræsafnið vakti forvitni barnanna

Fræsafnið RIFF Norræna húsið

Fræ, ræktun og leyndardómar náttúrunnar voru í brennidepli þegar ungir áhorfendur kynntust Fræsafni Borgarbókasafnsins á RIFF í Norræna húsinu.

Borgarbókasafnið heimsótti Norræna húsið til að kynna Fræsafnið fyrir ungum áhorfendum kvikmyndarinnar Ísey: Náttúrubarn í leikstjórn Lindu Ásgeirsdóttur. Myndin var sýnd á barnadagskrá RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, og segir frá ungu barni sem uppgötvar náttúruna í heimalöndum sínum tveimur, Íslandi og Eistlandi.

Fræsafnið RIFF Norræna húsið

Meðan á heimsókninni stóð ræddum við um söfnun fræja, varðveislu fræja og mikilvægi fræsafna. Einnig kynntum við sérstakt sáningardagatal Borgarbókasafnsins, sem er sniðið að íslensku loftslagi. Að svo búnu héldu börnin áfram að efla tengsl sín við náttúruna og nánasta umhverfi með því að læra að veita lífríkinu í kringum sig athygli.

Fræsafnið RIFF Norræna húsið

Langar þig að vita meira um Fræsafnið?

Kynntu þér það hér: https://borgarbokasafn.is/fraesafnid