BORGARBÓKASAFNIÐ

Gyrðir Elíasson hlaut nýverið hin virtu dönsku Zinklar-verðlaun sem eru heiðursverðlaun veitt smásagnahöfundi. Smásagnasafn Gyrðis, Bréfbátarigning, var endurútgefin á dönsku að þessu tilefni en hún kom fyrst út á dönsku árið 1991.
Zinklar-verðlaunin voru fyrst veitt árið 2013 og meðal fyrri vinningshafa má nefna Georgi Gospodinov, Judith Hermann, Julian Barnes, Lydiu Davis og Klaus Rifbjerg sem var fyrstur til að hljóta verðlaunin.
Við afhendingu verðlaunanna var sagt frá dönskum þýðingum á verkum Gyrðis og Erik Skyum-Nielsen, sem þýtt hefur 15 bækur eftir Gyrði, ræddi við skáldið um smásögur hans og smáprósa.
Verðlaunaféð nemur um 100.000 dönskum krónur sem eru um 2 milljónir íslenskra króna.