Hringrásarsafnið

Velkomin á Hringrásarsafnið þar sem þú getur fengið hluti að láni á bókasafninu!
Hvað er Hringrásarsafnið?
Hringrásarsafnið er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Munasafnsins RVK Tool Library.
Sjálfsafgreiðsluskápa fulla af gagnlegum tækjum og tólum má finna á Borgarbókasafninu Grófinni, Borgarbókasafninu Gerðubergi, Borgarbókasafninu Kringlunni og Borgarbókasafninu Úlfarsárdal.
Á Hringrásarsafninu getur þú fengið að láni allskonar hluti og smærri verkfæri.
Hér sérðu yfirlit yfir þá hluti sem eru í boði til útláns hverju sinni. Hlutum er skipt út reglulega:
Borgarbókasafnið Grófinni
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Borgarbókasafnið Kringlunni
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal

Hvernig gerist ég meðlimur? Hvað kostar áskrift í eitt ár?
Hver sem er getur fengið aðild að Hringrásarsafninu. Meðlimum er frjálst að fá lánaða eins marga hluti og þeir þurfa og eins oft og þá langar.
Árgjald
- Fyrir þau sem eiga bókasafnsskírteini: 5.000 kr.
- Fyrir þau sem eiga ekki bókasafnsskírteini: 7.000 kr.
- Fyrir meðlimi Munasafns RVK Tool Library: Frítt
Athugið að Hringrásarsafnið er útibú á vegum Munasafnsins, en áskrift að Hringrásarsafninu jafngildir ekki aðild að Munasafninu (meðlimir Munasafnsins hafa hins vegar aðgang að Hringrásarsafninu). Þau sem hafa áhuga á að gerast meðlimir Munasafnsins geta fundið upplýsingar á vefsíðu þeirra munasafn.com.
Hér er skemmtilegt viðtal úr Landanum, við umsjónarfólk Munasafnsins og Hringrásarsafnsins, þar sem farið er í nánar í saumana á þessu einstaka verkefni.
Nánari upplýsingar:
thorlakur@circularlibrary.network
eða
technician@munasafn.is | 774 5779