BORGARBÓKASAFNIÐ

Hanna Järvisalo og Tuija Takala, sem báðar eru kennarar í Helsinki, heimsóttu Borgarbókasafnið í mars 2026. Þær hittu starfsfólkið okkar sem kynnti fyrir þeim verkefni og þjónustu sem í boði er á safninu, með áherslu á samfélagslega þátttöku og viðburðahald.
Við báðum þær að svara nokkrum spurningum til að birta eftir heimsókn þeirra.
Af hverju völduð þið að kynna ykkur starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur?
„Við kennum báðar finnsku og bókmenntir í Helsinki og erum í samstarfi við bókasafnið. Við komum til Reykjavíkur til að heimsækja skóla, höfunda og háskólakennara og tengiliðurinn okkar, Karítas Pálsdóttir, mælti með heimsókn á Borgarbókasafnið vegna þess að hún vissi að við vorum áhugasamar um samfélagstengdu verkefnin sem bókasafnið vinnur að, sér í lagi þau sem snúa að fólki sem er að læra tungumálið.“
Vöktu einhver ákveðin verkefni eða þjónusta áhuga ykkar?
„Við vorum sérlega hrifnar af Pikknikk viðburðunum á bókasafninu. Einnig fannst okkur verkefnið Kærleiksorðræða mjög áhugavert en það snýst um að fá alls konar fólk til að leggja til ný orð í íslenskuna. Virkilega áhugaverð, skemmtileg og þýðingarmikil hugmynd.“
Hvaða lærdóm hafið þið dregið af heimsókninni og hvaða þýðingu hafa heimsóknir á borð við þessa fyrir starfshópinn ykkar?
„Við höfum sagt samstarfsfólki okkar frá pikknikk-verkefninu og erum að skoða hvernig við getum aðlagað það að skólanum okkar sem er stór, staðsettur á nokkrum stöðum og með um 1000 starfsmenn. Árlega eða tvisvar á ári höldum við þemaviku sem snýst um lestrarhvatningu og bæði Pikknikk verkefnið og orðabók Kærleiksorðræðunnar væru frábær fyrir dagskrána okkar. Við vonumst einnig til að fá tækifæri til að kynna orðabókarverkefnið fyrir bókasöfnum í nágrenninu og öðrum hagaðilum eftir því sem við á.
Martyna var frábær tengiliður og góður gestgjafi. Við nutum þess að ræða saman og skoða bókasafnið. Kynningin hennar var mjög skýr, hún sagði vel frá verkefnunum, jafnt í máli sem myndum. Dettur í raun ekkert í hug sem betur mætti fara. Kærar þakkir fyrir frábæra heimsókn!“
Mynduð þið mæla með heimsókn á Borgarbókasafnið við starfsfólk annarra bókasafna í heimalandi ykkar?
„Já, ekki nokkur spurning!“