BORGARBÓKASAFNIÐ
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins.
Árið 2025 eru liðin 50 ár frá því að íslenskar konur lögðu niður störf sín, bæði launuð og ólaunuð, og stöðvuðu með því nánast allt þjóðfélagið í einn sólarhring. Þessi sögulegi dagur, 24. október 1975, markaði tímamót í jafnréttisbaráttu kvenna á Íslandi og hefur síðan orðið tákn um samstöðu og kraft íslenskra kvenna.
Í tilefni þessu stórafmæli var kvikmyndin The Day Iceland Stood Still sýnd í fullri lengd í Félagsbíói í Aðalsafni Bókasafns Reykjanesbæjar sunnudaginn 21. september síðastliðinn.
Dagskráin hófst kl. 15 þegar ljóðskáldið Gunnhildur Þórðardóttir flutti ljóð fyrir gesti og gangandi í safninu. Ljóðaflutningur Gunnhildar setti tóninn fyrir daginn og minnti á mikilvægi listar og orðsins í baráttu kvenna fyrir jafnrétti og réttlæti.

Að loknum ljóðalestri hófst sýning kvikmyndarinnar, sem fjallar um kvennaverkfallið og áhrif þess á íslenskt samfélag. Að sýningu lokinni tók Hrafnhildur Gunnarsdóttir, handritshöfundur og aðalframleiðandi myndarinnar, til máls og sagði frá gerð myndarinnar, undirbúningi hennar og þeim áhrifum sem kvennaverkfallið hefur haft á kynslóðir kvenna síðan.
Gestir fengu einnig tækifæri til að spyrja Hrafnhildi spurninga og ræða við hana um efni myndarinnar og jafnréttismál almennt.
Viðburðurinn var hluti af samstarfsverkefninu „Læsi á stöðu og baráttu kvenna“, sem er samstarf almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni Kvennaársins 2025. Markmið verkefnisins er að efla vitund um stöðu kvenna, sýna fram á mikilvægi menntunar og læsis í jafnréttisbaráttu og skapa vettvang fyrir samtal um sögu og framtíð kvenréttinda.