BORGARBÓKASAFNIÐ

Nýverið var tilkynnt um hvaða skáldverk og höfundar hlytu þann heiður að fá sæti á langlista Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026. Eftirtalin 13 skáldverk eru á langlistanum í ár:
The Shadow of the Object eftir Chloe Aridjis
Switzy eftir Emma Cline
Helen of Nowhere eftir Makenna Goodman
The End of Everything eftir M. John Harrison
The Disappearers eftir Marlon James
Black Bag eftir Luke Kennard
The Renovation eftir Kenan Orhan
May We Feed the King eftir Rebecca Perry
The Palm House eftir Gwendoline Riley
The Things We Never Say eftir Elisabeth Strout
John of John eftir Douglas Stuart
All them Dogs eftir Djamel White
The Vivisectors eftir Missouri Williams
Höfundar tilnefndra skáldverka í ár eru fulltrúar sjö þjóðlanda og þriggja heimsálfa en meirihlutinn er þó frá Bretlandi. Fyrrum vinningshafar prýða listann en þeir eru Marlon James og Douglas Stuart og einnig hefur Elisabeth Strout áður setið á stuttlista verðlaunanna. 10 höfundar og verk eru tilnefnd í fyrsta sinn og þar af eru þrjár frumraunir höfunda.
Bookerverðlaunin hafa verið veitt í 55 ár og hafa vakið athygli á og lyft fjölda bókmenntaverka í gegnum áratugina. Skáldverkin á listanum í ár voru valin úr hópi 163 tilnefndra verka sem skrifuð eru á ensku og gefin út á Bretlandi og Írlandi frá 1. október 2025 til 30. september 2026. Stuttlisti Booker-bókmenntaverðlaunanna verður kynntur af dómnefnd verðlaunanna í ár í beinni útsendingu frá Soutbank Center í London þann 22. september næstkomandi.
Vinningshafi Booker-bókmenntaverðlaunanna verður tilkynntur þann 9. nóvember, við hátíðlega athöfn í London og hlýtur í peningaverðlaun 50.000 ensk pund en aðrir á stuttlistanum hljóta 2500 pund í sinn hlut.

Dómnefndina í ár skipa ljóðskáldið Mary Beard, skáldið og rithöfundurinn Raymond Antrobus, tónlistar- og útvarpsmaðurinn Jarvis Cocker, blaðamaðurinn Rebecca Liu og rithöfundurinn Patricia Lockwood. Mynd af dómnefnd: © Neo Gilder for the Booker Prize Foundation.
Hér fyrir neðan má finna þær bækur sem til eru í bókakosti Borgarbókasafnsins. Ef smellt er á bókina er hægt að taka hana frá og sækja í næsta bókasafn. Rafbókasafnið býður einnig upp á tilnefnd verk í sínu safni sem finna má á listanum.