BORGARBÓKASAFNIÐ

Leshringur | Sveigur

Leshringur | Sveigur

Vinsamlegast athugið að leshringurinn er fullskipaður í bili.

Við komum saman einn mánudag í mánuði kl. 17:15-18:30 á 2. hæð í Borgarbókasafninu Spönginni.

Valin er ein bók í hverjum mánuði sem hópurinn les og fjallar síðan um á næsta fundi. Lesin eru nýleg skáldverk eftir bæði íslenska og erlenda höfunda sem og einstaka ævisaga.

Fyrsti fundur hópsins að hausti er í lok ágúst og segir þá hver og einn frá því sem staðið hefur uppúr af þeim bókum sem hann las yfir sumarið. Það sama gerum við á fundi hópsins í lok janúar og ræðum þá hvaða bækur urðu fyrir valinu yfir hátíðarnar.
Leshringurinn hittist ekki í desember, júní, júlí og ágúst.

Hægt er að skrá sig í leshringinn hvenær sem er ársins, svo framarlega sem það er laust pláss.

Dagskrá haustsins 2026

31. ágúst
Minn sumarlestur!

21. september 
Hittumst á Gljúfrasteini kl. 16:00  - Innansveitarkronika eftir Halldór Laxness

19. október
Kalak eftir Kim Leine í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar

23. nóvember 
Hrafninn eftir Vilborgu Davíðsdóttur

18. janúar
Minn hátíðalestur!
 

Sjá yfirlit um alla leshringi og spjallhópa Borgarbókasafnsins.


Umsjón og skráning:

Ásta Halldóra Ólafsdóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu Spönginni 
asta.halldora.olafsdottir@reykjavik.is.