BORGARBÓKASAFNIÐ

Það er fátt betra í skammdeginu en að kúra upp í sófa með góða bók eða mæta á bókasafnið til að spjalla við rithöfunda og þýðendur um nýju bækurnar sem streyma inn á bókasöfnin og í bókabúðirnar í aðdraganda jóla.
Á Borgarbókasafninu er eitt og annað spennandi í boði sem snýr að lestri, skáldskaparskrifum, samveru og bókmenntaumfjöllun, bæði fyrir börn og fullorðna.
Kíktu endilega á það sem er í boði og settu inn í dagatalið það sem þú vilt ekki missa af!