BORGARBÓKASAFNIÐ

Sumarið var hvatt með stæl á uppskeruhátíð sumarlesturs sem fór fram á Borgarbókasafninu Grófinni sunnudaginn 30. ágúst. Á hátíðinni var boðið upp á skemmtiatriði og leiki auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir þátttöku. Athygli vakti að metþátttaka var í þessari skemmtilegu lestraráskorun í ár en fjöldi þátttakenda þrefaldaðist á milli ára. Gúndi geithafur og grasleitin mikla var yfirskrift lestraráskorunar sumarsins og var unnin í góðu samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasöfn um land allt.
Í ár var gerð sú nýbreytni að Borgarbókasafnið, með fulltingi skóla- og frístundasviðs, gaf öllum börnum í 1. - 6. bekk í Reykjavík vegabréf til að taka þátt í áskoruninni. Voru vegabréfin send í alla grunnskóla í Reykjavík og sá starfsfólk skólabókasafna um að dreifa þeim til nemenda. Óhætt er að segja að þetta nýja fyrirkomulag hafi skilað frábærum árangri, þátttaka í sumarlestrinum var meiri en nokkru sinni fyrr í Reykjavík og fjöldi þátttakenda rúmlega þrefaldaðist á milli ára.
Börnin hreinlega streymdu inn á söfn Borgarbókasafnsins með sumarlestursheftin sín meðan á áskoruninni stóð, frá 20. maí til 20. ágúst, ýmist til að fá stimpil fyrir góðan árangur eða nýtt vegabréf.

Á uppskeruhátíðinni voru heppnir þátttakendur verðlaunaðir auk þess sem boðið var upp á skemmtiatriði og Blær Guðmundsóttir, teiknari og myndhöfundur lestraráskorunarinnar, bauð gestum að taka þátt í skemmtilegum teiknileik.
Vinningshafar sumarlesturs 2026 voru:
Arnhildur Anna, Balqees, Einar Logi, Gavriel, Maja, Milan, Ragnhildur Sara, Sefton og Balqees sem hlaut aðalvinninginn, leikhúsmiða fyrir tvo á barnasýningu hjá Borgarleikhúsinu.
Hér á heimasíðunni má lesa skemmtileg viðtöl við heppna þátttakendur sem voru dregnir út á meðan á lestraráskoruninni stóð í sumar
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir,
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146