Mjúkt net

Verkefnið er framlag Borgarbókasafnsins til Miðlalæsisviku 2026 og verður jafnframt heildstæð viðburðaröð haustið 2026 og fram á vor 2027. Þar ætlum við að kafa ofan í samband okkar við tækni, miðla og stafrænt líf, með gagnrýnni hugsun, sköpun og lýðræðislegri þátttöku að leiðarljósi.
Á dagskránni verða meðal annars:
- Skapandi fjölskylduviðburðir í öllum starfsstöðvum Borgarbókasafnsins.
- Vikulegar samverustundir þar sem fjallað verður um persónuverndarstillingar, aðgangsheimildir smáforrita og það sem liggur að baki stafrænni sjálfsmynd okkar; meðal annars hvernig kerfin flokka okkur út frá áhugamálum og hegðun.
- Vinnustofur þar sem saumaðir verða síma-svefnpokar úr Faraday-efni.
- Miðlasúpa, afslappaðar umræðustofur með súpu, brauði og umræðum um stafrænt samfélag framtíðarinnar.
Barna- og ungmennadagskrá 11.-18. október
Vertu með

Vikulegar samfélagsstundir í Grófinni
Finnst þér stundum eins og stafræna lífið sé farið að stjórna þér frekar en þú því? Langar þig að fá betri yfirsýn og ná meiri stjórn, en veist ekki hvar best er að byrja? Hvað ef bókasafnið gæti hjálpað þér að skilja þessi ósýnilegu kerfi sem móta stafrænt daglegt líf okkar og stutt þig í að endurheimta stjórn á tíma þínum og gögnum ? Komdu með símann þinn, spurningarnar, reynsluna og jafnvel gremjuna og taktu þátt í Mjúku neti, vikulegum samverustundum þar sem við lærum saman og hvert af öðru. Þátttakendur miðla eigin þekkingu og reynslu, ásamt sérfræðingum í öryggi farsíma og textíllistafólki sem vinnur með skemmtilega hugmynd um svefnpoka fyrir síma.
Við hlökkum til að skapa hægara, mannlegra og meðvitaðra stafrænt rými með ykkur öllum.
Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is





