BORGARBÓKASAFNIÐ

Bókmenntahátíðin Queer Situations 2026 hófst 14. maí og mun standa til sunnudagsins 17. maí. Queer Situations bókmenntahátíðin leggur áherslu á hinsegin bókmenntir í fleiri en einum skilning: Bækur höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin en einnig bókmenntir sem falla utan meginstraumsins.
Meðal höfunda og skálda á hátíðinni í ár eru Alana S. Portero (Spánn), Carmen Maria Machado (Bandaríkin), Lee Langvad (Danmörk) og Beinir Bergsson (Færeyjar).
Viðburðir fara fram í Tjarnarbíói í Reykjavík, Salnum í Kópavogi og Hringsal Landspítala.
Hér má finna frekari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar: https://www.queersituations.com/