BORGARBÓKASAFNIÐ

Haukur Víðisson, 12 ára, var svo ljónheppinn að vera dreginn út í sumarlestursáskoruninni Gúndi geithafur og grasleitin mikla, samstarfi Borgarbókasafnsins, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasafna. Haukur var að vonum glaður þegar hann fékk bók í verðlaun og var svo almennilegur að svara nokkrum spurningum.
Hver er uppáhalds bókin þín?
„Aukaspyrna á Akureyri [eftir Gunnar Helgason].“
Hvaða bók mundir þú mæla með við vini þína og af hverju?
„Doktor Proktor og prumpuduftið [eftir Jo Nesbø] því hún er svo fyndin og skemmtileg.“
Hvaða bók finnst þér að fullorðna fólkið ætti að lesa og af hverju?
„HM-bókina 2026 til að skilja fótbolta betur og læra meira um bestu knattspyrnumennina.“
Hvar finnst þér best að lesa?
„Uppi í rúmi.“
Hvenær finnst þér best að lesa?
„Áður en ég fer að sofa.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á sumrin?
„Að vera með fjölskyldunni, annað hvort í útlöndum eða að elta góða veðrið á Íslandi.“
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt í sumar?
„Gista í sumarbústað og tjaldi og vera tvær vikur í Aðalvík.“
Starfsfólk Borgarbókasafnsins óskar Hauki innilega til hamingju og vonar að hann verði duglegur að lesa í sumar.
Sumarlestraráskorunin stendur yfir til 20. ágúst og því enn nægur tími til að taka þátt!
Allar nánari upplýsingar hér: https://borgarbokasafn.is/sumarlestur-2026-lestrarsprettur-gunda-geithafurs