BORGARBÓKASAFNIÐ

Stuttlisti Booker-bókmenntaverðlaunanna var kynntur með pomp og prakt í Southbank Center í London 22. september. Á listanum eru sex skáldverk, þeirra á meðal eru verk tveggja fyrrum vinningshafar, Marlon James og Douglas Stuart og skáldsaga eftir Elisabeth Strout sem er nú tilnefnd í þriðja sinn.
Eftirtalin verk eru á stuttlistanum í ár:
Black Bag eftir Luke Kennard
The End of Everything eftir M. John Harrison
May We Feed the King eftir Rebecca Perry
John of John eftir Douglas Stuart
The Disappearers eftir Marlon James
The Things We Never Say eftir Elizabeth Strout
Booker-bókmenntaverðlaunin hafa verið veitt í 55 ár og hafa vakið athygli á og lyft fjölda bókmenntaverka í gegnum áratugina. Skáldverkin á listanum í ár voru valin úr hópi 163 tilnefndra verka sem skrifuð eru á ensku og gefin út á Bretlandi og Írlandi frá 1. október 2025 til 30. september 2026. Vinningshafi Booker-bókmenntaverðlaunanna verður tilkynntur þann 9. nóvember, við hátíðlega athöfn í London og hlýtur í peningaverðlaun 50.000 ensk pund en aðrir á stuttlistanum hljóta 2500 pund í sinn hlut.
Hér má finna yfirlit yfir langlista Booker-bókmenntaverðlaunanna 2026.

Dómnefndina í ár skipa ljóðskáldið Mary Beard, skáldið og rithöfundurinn Raymond Antrobus, tónlistar- og útvarpsmaðurinn Jarvis Cocker, blaðamaðurinn Rebecca Liu og rithöfundurinn Patricia Lockwood. Mynd af dómnefnd: © Neo Gilder for the Booker Prize Foundation.
Hér fyrir neðan má finna bækurnar á stuttlistanum sem til eru í bókakosti Borgarbókasafnsins. Ef smellt er á bókina er hægt að taka hana frá og sækja í næsta bókasafn. Rafbókasafnið býður einnig upp á tilnefnd verk í sínu safni sem finna má á listanum.