BORGARBÓKASAFNIÐ

Svakalega lestrarkeppnin 2026 er hafin! Keppnin hefst í dag 15. september og stendur til 6. október 2026. Um er að ræða lestrarátak fyrir krakka í 1. - 7. bekk um land allt. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu. Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.
Í tilefni svakalegu lestrarkeppninnar verður á morgun í Borgarbókasafninu Spönginni haldin lestrarstund frá kl. 16 - 17:30 fyrir krakka í 1. - 7. bekk. Boðið verður upp á djús og kex til að maula á saman í lestrarstundinni.
Sérstakar bókaútstillingar verða í Borgarbókasafninu á meðan á svakalegu lestrarkeppninni stendur og krakkar eru hvattir til að koma við á bókasafninu og finna sér þar bók til að lesa í keppninni.
Í svakalegu lestrarkeppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun. Úrslit verða tilkynnt 15. október.
Það eru höfundarnir Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir sem standa fyrir svakalegu lestrarkeppninni. Þær hafa hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín og nýverið hlutu þær Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026 fyrir handritið að glænýrri barnabók sem ber heitið Bestu vinir.
Allar frekari upplýsingar um svakalegu lestrarkeppnina má finna hér: https://www.sogusmidjan.is/lestrarkeppnin
