BORGARBÓKASAFNIÐ

Í tilefni af Kvennaári 2025 gerðu Borgarbókasafnið og Kvenréttindafélag bókmenntagöngu. Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélagsins, og Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur á bókasafninu gerðu sveigjanlega bókmenntagöngu sem hægt er að framkvæma nánast hvar sem er. Gangan byggir á því að velja nokkra lykilstaði sem flestir bæir eða hverfi eiga sér, t.d. leikskóla, sundlaug, bókasafn, listaverk eða fallega náttúru, og tengja þá við texta kvenna sem kalla fram ákveðin sjónarhorn. Textabrotin voru prentuð á handhæg spjöld sem auðvelt er að bera með sér og nota í leiddri bókmenntagöngu. Gönguspjöldin eru aðgengileg og til láns á bókasöfnum víðs vegar um landið.
Fyrsta gangan var farin 19. október 2025 og hlaut mjög góðar undirtektir. Hópur fólks gekk saman frá Borgarbókasafninu Kringlunni í fallegu haustveðri. Stoppað var á 11 af 13 mögulegum stöðum og tók gangan um 1,5 klst. Þessi ganga var fullkomið dæmi um það hvernig hægt er að fara í göngu frá ólíklegustu stöðum og finna fegurð, uppgötva hliðargötur og kynnast umhverfinu sínu betur í góðum hópi eða jafnvel upp á eigin spýtur.

Gönguspjöldin hafa þegar verið notuð í göngur frá öðrum bókasöfnum. Arndís Þórarinsdóttir leiddi göngu frá Bókasafni Garðabæjar 24. apríl 2026, Margrét Guðjónsdóttir gerði slíkt hið sama frá Héraðsbókasafni Rangæinga 8. mars 2026 á alþjóðlegum baráttudegi kvenna og Vigdís Hafliðadóttir stýrði göngu frá Borgarbókasafninu í Grófinni 13. ágúst 2026 en sú síðastnefnda var hluti af dagskrá Kvöldgangna 2026.
Göngurnar hafa allar verið vel sóttar en ganga Vigdísar sló fjöldamet í Kvöldgöngum sumarsins hjá Borgarbókasafninu. Um 250 manns gerðu sér leið í miðbæinn og gengu saman kringum Tjörnina með skemmtilegum útúrdúrum. Meðal annars var staldrað við Kvennaskólann, hús Theodóru Thoroddsen og í höggmyndagarðinum Perlufestinni í Hljómskálagarðinum, sem er til minningar um formæður íslenskrar höggmyndalistar.

Galdurinn við gönguspjöldin er að það þarf ekki eiginlegan leiðsögumann þó svo að það sé auðvitað kostur að einhver einn haldi utan um spjöldin með textunum. Upplestrar eru í forgrunni og þátttakendur göngunnar eru hvattir til þess að taka þátt í að lesa textana upphátt saman. Það stuðlar að því að fólk taki virkari þátt og upplifi textana öðruvísi en ef það heyrði þá einfaldlega lesna. Gangan er því bæði hugsuð sem samverustund og skapandi upplifun. Gönguspjöldin bjóða upp á þann möguleika að skella sér í litla bókmenntagöngu með vinum, saumaklúbbnum, fjölskyldunni eða einn með sjálfum sér. Þátttakendur í göngunni stýra ferðinni, stjórna stoppunum og geta jafnvel bætt við textum að eigin vali sem þeim finnst henta hverri göngu.
Fyrir þau sem vilja fá tilbúna gönguleið með tilbúnum leiðarlýsingum þá má finna nokkrar hugmyndir inni á heimasíðu verkefnisins og möguleiki á að fleiri bætist við. Við vonum að þessi ganga komi til með að hvetja fólk í göngu og gleðja um ókomna tíð.
