BORGARBÓKASAFNIÐ

Spjall við Branislav Bédi, verkefnisstjóra á alþjóðasviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, um verkefnið Kærleiksorðræða. Branislav hefur umsjón með ýmsum verkefnum innan stofnunarinnar, þar á meðal hinu árlega alþjóðlega sumarnámskeiði í íslensku.
Kærleiksorðræða er verkefni sem leggur áherslu á upplifun, tilfinningalæsi og eignarhald á tungumálinu. Öll þau sem koma að verkefninu eru hvött til að búa til ný íslensk orð. Eins og titill verkefnisins ber með sér er lögð áhersla á leik að orðum. Öllum nýju orðunum er safnað saman í nýstárlega orðabók sem er geymd á Borgarbókasafninu. Auk þess sköpum við vettvang til að ræða það sem er okkur kært – upplifun okkar af samskiptum.
Hvað var það við Kærleiksorðræðu sem vakti áhuga þinn á verkefninu?
„Fyrst og fremst var það hugmyndin sjálf að nota jákvæð orð til að lýsa tilfinningum sínum gagnvart íslenskri tungu. Auðvitað skynjar fólk umheim sinn á ólíkan hátt, en þessi vettvangur gerir fólki kleift að nota íslensku á skapandi hátt, á hvaða færnistigi sem er. Þátttakendur geta tengt þekkingu sína á mismunandi tungumálum við þekkingu sína á íslensku og þannig búið til ný orð.“
Hvernig geta skapandi tungumálasmiðjur á borð við Kærleiksorðræðu stutt við eða bætt hefðbundið tungumálanám í íslensku?
„Fólk af erlendum uppruna skynjar ýmis fyrirbæri í íslensku á fjölbreyttan hátt. Það stafar meðal annars af því að fólk nýtir þekkingu á fyrsta máli sínu sem eins konar grunn til að skilja íslenskuna. Þessi aðferð hefur fjölmenningarlegt gildi og hjálpar nemendum í íslensku sem öðru máli að skilja betur uppbyggingu málsins, bæði í rituðu formi eða töluðu.“
Getur þátttaka (erlends) fólks af ólíkum uppruna stuðlað að þróun og varðveislu íslenskunnar?
„Auðvitað getur virk þátttaka allra stuðlað að þróun og varðveislu íslenskunnar. Það er bara spurning um hvers konar þróun og varðveislu málsins við sjáum fyrir okkur í framtíðinni. Öll tungumál í heiminum þróast og breytast, sem er fullkomlega eðlilegt. Með því að stuðla að virkari notkun íslenskunnar í samfélaginu væri hægt að skapa öflugra málsamfélag hér á landi sem auðveldar fleirum að læra málið.“
Hvaða hindranir standa nemendur helst frammi fyrir þegar þeir byrja að læra íslensku á Íslandi?
„Helsta hindrunin, að mínu mati, er sú að of oft er gripið til ensku í samskiptum við fólk af erlendum uppruna. Afleiðingin er sú að nemendur fá oft lítil sem engin tækifæri til að æfa sig í íslensku.“
Hvers vegna skiptir máli að stofnun á borð við Borgarbókasafnið taki frumkvæði í verkefnum eins og Kærleiksorðræðu?
„Stofnanir geta verið góðar fyrirmyndir og fólk lítur gjarnan til þeirra. Verkefnið ykkar hefur jákvætt gildi fyrir samfélagið og mikilvægt er að aðrar stofnanir styðji við það.“
Finnst þér hugmyndafræði Kærleiksorðræðu eiga erindi víðar? Til dæmis í þínu starfi og starfsumhverfi? Hvernig þá?
„Já, mér finnst þetta verkefni einnig eiga erindi í mínu starfi, sérstaklega í tengslum við alþjóðlegan sumarskóla í íslensku máli og menningu sem Árnastofnun og Háskóli Íslands standa fyrir ár hvert. Á hverju ári sækir fjöldi erlendra námsmanna þennan vinsæla sumarskóla til að læra íslensku og fræðast meðal annars um sögu landsins, náttúru, bókmenntir og samfélagið. Þar gæti Kærleiksorðræða skapað nýjan vettvang fyrir aukin samskipti á íslensku.“