Vinnustofa og fyrirlestur um bókameðferð

Í lok október mun breski bókameðferðarfræðingurinn og rithöfundurinn Bijal Shah halda heilsdags vinnustofu og einnig opinn fyrirlestur í Borgarbókasafninu. Þar mun hún fjalla um bókameðferð og áhrif lesturs og bókmennta á geðrækt og vellíðan. Heimsóknin er liður í að efla þekkingu á bókameðferð og möguleikum hennar hér á landi.
Bókameðferð (e. bibliotherapy) byggir á þeirri hugmynd að bækur og lestur geti hjálpað fólki að skilja eigin reynslu, nefna tilfinningar og vinna úr þeim, auk þess að sjá aðstæður sínar í nýju ljósi. Aðferðin á sér langa sögu og er í dag nýtt á fjölbreyttan hátt á sviðum geðheilbrigðis, menntunar og vellíðunar.
„Í sinni einföldustu mynd er bókameðferð markviss notkun bókmennta til að styðja við bata, sjálfsskilning og persónulegan þroska. Hún nýtir til dæmis skáldverk, fræðibækur, endurminningar, ljóð, goðsögur, ritgerðir eða önnur frásagnarform," segir Bijal Shah um aðferðina.
Bijal Shah er brautryðjandi á sviði bókameðferðar og höfundur bókarinnar Bibliotherapy: The Healing Power of Reading. Hún er einnig stofnandi Book Therapy, vettvangs sem helgaður er tilfinningalegum og sálrænum áhrifum bókmennta. Hún vinnur með einstaklingum, skólum, stofnunum og innan heilbrigðisþjónustu. Skrif hennar og bókmenntaráðleggingar hafa meðal annars birst í The Guardian, BBC Culture, Marie Claire og Good Housekeeping. Bijal hefur sjálf nýtt bækur sem uppsprettu aukinna lífsgæða.
Vinnustofa
Á vinnustofunni Bókameðferð, bókmenntir og geðheilbrigði kynnir Bijal bæði fræðilegan grunn og hagnýtar aðferðir við að nýta bókmenntir til ígrundunar, samtals og tengslamyndunar.
Vinnustofan eru opin öllum sem áhuga hafa á viðfangsefninu og er starfsfólk bókasafna sérstaklega hvatt til að taka þátt. Þátttaka í námskeiðinu er gjaldfrjáls. Fjöldatakmörkun er á námskeiðið og eru áhugasöm hvött til að skrá sig sem fyrst. Vinnustofan fer fram á ensku.
Hægt er að velja um tvær dagsetningar, annars vegar mánudaginn 26. október og hins vegar þriðjudaginn 27. október kl. 9-16. Farið er yfir sama efni báða dagana. Vinnustofurnar eru haldnar í Borgarbókasafninu Gerðubergi.
„Markmiðið er ekki að gera bókasafnsfræðinga eða kennara að meðferðaraðilum,“ segir Bijal um vinnustofuna, „heldur hjálpa þeim að nýta bókmenntir á meðvitaðri og markvissari hátt í þeim hlutverkum sem þeir gegna þegar.“
Skráning í vinnustofu:
Smelltu á slóðina hér fyrir neðan til að skrá þig í vinnustofu:
Hér má skrá sig í vinnustofu í bókameðferð (e. Bibliotheraphy) 26. október
Hér má skrá sig á námskeið í bókameðferð (e. Bibliotheraphy) 27. október
Opinn fyrirlestur
Miðvikudaginn 28. október kl. 17–18 heldur Bijal Shah opinn fyrirlestur í Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, undir yfirskriftinni Lækningamáttur bóka – kynning á bókameðferð. Þar fjallar hún um sögu bókameðferðar og hvernig lestur getur stutt við geðrækt, samkennd, ígrundun og seiglu í daglegu lífi.
Í framhaldi af komu Bijal Shah til landsins verða sérfræðingar Bókmenntaskólans, Esther Ágústsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari, og Elín Bergsdóttir, náms-og starfsráðgjafi, félagsfræðingur og ljóðskáld með mánaðarlegar vinnustofur í Borgarbókasafninu Grófinni þar sem unnið verður út frá aðferðum bókameðferðar.
Vinnustofur og fyrirlestur Bijal Shah er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaskólans. Verkefnið hlaut styrk úr Bókasafnasjóði árið 2026.
Frekari upplýsingar veitir:
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
Verkefnastjóri | Bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is | 411 6149
Ljósmynd af Bijal Shah: Alex Taibl
