BORGARBÓKASAFNIÐ
Bókasafnasjóður veitti styrk til verkefnisins.
Sýning á ritverkum Önnu á Brúnum og Kristínar frá Keldum.
Héraðsbókasafn Rangæinga og Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga.

Mánudaginn 6. október var opnuð sýning á Héraðsbókasafni Rangæinga í samstarfi við Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga á ritverkum Önnu Vigfúsdóttur og Kristínar Skúladóttur. Talsvert er varðveitt af bréfum og dagbókum Önnu og Kristínar auk teikninga Kristínar á Héraðsskjalasafninu. Titill sýningarinnar er tekinn úr 5. erindi ljóðs Kristínar „Skrifarinn og skáldið“ (Handritin heim 1965) Vönduð eur verkin skráð, með veikum fjöðurstaf. En Íslands snauða alþýða, þau aldrei kóngi gaf.
Sýningin stóð til 21. nóvember og höfðu gestir bókasafnsins almennt mjög gaman að.
Fyrstu 2 vikur sýningarinnar var að auki farandsýningin „Kvennafrí og kvennasögusafn í 50 ár“ á safninu.
Elísa Elíasdóttir skrásetti.