Barnabækur á ýmsum tungumálum

Allar barnadeildir Borgarbókasafnsins geyma úrval af barnabókum á bæði íslensku og ensku

Leitar þú að skáldsögum fyrir fullorðna á öðrum tungumálum? Hér er má finna yfirlit yfir þær.

Á bókasöfnunum í Gerðubergi, Grófinni og Spönginni má helst finna pólskar barnabækur, en í Gerðubergi og Grófinni er gott úrval barnabóka á mörgum fleiri tungumálum.

Hér fyrir neðan er listi yfir þau tungumál sem nálgast má á Borgarbókasafninu og við minnum á að það er alltaf hægt að fá bækur sendar á það bókasafn sem er þér næst. Þetta er gert inni á „Mínum síðum“ hér á heimasíðunni en einnig getur starfsfólk aðstoðað þig við að panta bækur af öðrum söfnum.

Er bókin sem þig langar að lesa fyrir börnin ekki til? Sendu okkur endilega innkaupatillögu.