Gerðuberg kallar | Viskutjaldið

Viskutjaldið er staður þar sem fólk lærir af hvert öðru.

Sumt sem við vanalega lærum ekki, miðlað af röddum sem oft er ekki hlustað á, frá mismunandi víddum samfélagsins og heiminum.
Á samverustundum í tjaldinu bjóðum við lífskúnstnerum, t.d. nornum úr hverfinu, sem vilja deila þekkingu sinni og seiðum lífsins.
Fyrst og fremst er þetta afsökun og tækifæri til þess að vinda ofan af sér, hlusta á sögur, láta fara vel um sig í tjaldinu (eins og barn sem hefur endalausan tíma framundan).

Samvera í tjaldinu | Viskutjaldið #1
Samvera í tjaldinu | Viskutjaldið #2
Samvera í tjaldinu | Viskutjaldið #3

"We think there is a witch in everybody – big or small. Witches have been present in all kinds of cultures around the world, and therefore known to us all. Witches have the ability to heal physical and spiritual illnesses. They are carriers of generational knowledge, they teach without discrimination and keep the community united. We would like to create a place within the library where witches feel at home. So, we’re going to build a magic tent! A tent where people can listen to each other and learn from voices that aren't always heard, from different ages, and parts of society and the world." 

Gerðuberg kallar hófst árið 2021 með ákalli til skapandi einstaklinga um að vinna verkefni með safninu. Að leiðarljósi voru tvö þemu: að tilheyra og örugg rými fyrir alla. Í stuttu máli heppnuðust bæði verkefnin vel og skildu eftir sig reynslu og tengsl sem fylgja okkur áfram. Því viljum við halda áfram með skapandi samstarf og að þessu sinni er þemað: tengsl - það sem sameinar okkur.

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.

Frekari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur í fjölmenningarmálum
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is

UppfærtMiðvikudagur, 8. nóvember, 2023 11:12