paper bird mask

Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:00
Verð
Frítt
Börn

Hvers konar fugl ert þú?

Sunnudagur 21. apríl 2024

Átt þú uppáhalds fugl? Eða líkist þú kannski einhverjum fugli? Komdu til okkar í fuglagrímugerð og farðu heim sem uppáhalds fuglinn þinn! Við munum nota fjaðrir, vatnslitamálningu og annað fallegt skraut til að búa til fallegar grímur! Við tölum íslensku, ensku, frönsku, pólsku og spænsku en finnum leiðir til að eiga samskipti og hafa gaman á öllum tungumálum.
Þátttaka í vinnustofunni er frí og allt efni sem þarf til verður á staðnum svo komið bara með ykkur sjálf og sköpunargleðina!
 

Á Kakó Lingua viðburðum er lögð áhersla á fjölmenningarlegar samverustundir þvert á kynslóðir. Með því að nota sjónræna samsköpun og mismunandi tungumál í vinalegu og hvetjandi umhverfi, nýtum við færni hvers annars og tengjumst með því að hafa samskipti umfram tungumálið. Viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Kringlunni, þátttaka er ókeypis og allt efni á staðnum. Síðast, en ekki alls ekki síst, það er alltaf heitt kakó á boðstólnum og notaleg tónlist á fóninum.

Viðburðurinn á Facebook

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is