Föndrum og spjöllum á íslensku

Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Föndur
Tungumál

Föndrum og spjöllum á íslensku

Laugardagur 25. maí 2024

In English

Finnst þér gott að dunda við eitthvað á meðan þú spjallar? Gengur þér betur að læra þegar þú vinnur að einhverju í höndunum, til dæmis föndrar eitthvað fínt?
Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Við föndrum, fáum okkur kaffi/te og spjöllum.

Viðburðurinn er hugsaður fyrir byrjendur í íslensku en er opinn öllum.

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Viðburður á facebook

Föndrum og spjöllum á íslensku er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim, þar sem boðið er upp á fjölbreyttar og skemmtilegar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara. 

Dagskrá Spjöllum með hreim má finna HÉR.


Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur í fjölmenningarmálum
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is