Pikknikk

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Lautarferð með injera á bókasafninu

Sunnudagur 7. apríl 2024

Þér er boðið! Kíktu í lautarferð á bókasafnið.    

Gestgjafinn þessu sinni er Feven Aberam og deilir hún eþjópískum injera-pönnukökum með ýmsum sósum.

Hér er ekkert rok, enginn kuldi, ekkert kjaftæði, bara næs!

Öllum er velkomið að koma með eigið nesti og setjast á grasgræna svæðið. Gott er að kippa með sér teppi eða einhverju mjúku til að tylla sér á undir sólhlífunum.  

Við hittumst reglulega í mismunandi hverfum borgarinnar og í hvert skipti er einn hópur í hlutverki gestgjafa. Þau bjóða upp á snarl og stinga upp á áhugaverðum umræðuefnum.

Viðburður á Facebook 

Meira um lautarferðirnar HÉR.

Öll velkomin! 

Frekari upplýsingar    
Dögg Sigmarsdóttir    
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka     
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is      

Martyna Karolina Daniel    
Sérfræðingur | Fjölmenningarmál    
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is