Smátextar | Skáseta
Skáseta
Ég passa ágætlega í þennan stól
þar sem ég get setið þvers og kruss
með lappirnar í allar áttir.
Ég passa ekki í stóla
þar sem ég þarf að sitja bein
með fæturna dömulega saman.
Ég passa yfirleitt ekki.
Höfundur: Guðrún Ólafsdóttir