Tilnefndir höfundar til Viðurkenningar Hagþenkis 2024
Tilnefndir höfundar til Viðurkenningar Hagþenkis 2024

Til hamingju! | Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2024

Við óskum höfundum sem tilefndir eru til Viðurkenningar Hagþenkis 2024 innilega til hamingju og við bendum áhugasömum lesendum að kynna sér þessi fjölbreyttu og glæsilegu fræðirit. 

Tilnefningarnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í Borgarbókasafninu Grófinni, miðvikudaginn 7. febrúar s.l.

Laugardaginn 24. febrúar kl. 13:00 - 15:00 munu höfundar stíga á stokk í Borgarbókasafninu Grófinni til að kynna verk sín. Öll hjartanlega velkomin.

Viðurkenningin verður síðan veitt við athöfn í Þjóðarbókarbókhlöðunni í mars. Verðlaunahafinn hlýtur viðurkenningarskjal og 1.250.000 kr.

Bára Baldursdóttir
Kynlegt stríð – Ástandið í nýju ljósi

Útgáfa: Bjartur

Merkileg greining á skjalasöfnum frá síðari heimsstyrjöld sem nýverið voru gerð aðgengileg. Höfundur afhjúpar skipulagðar njósnir hins opinbera um konur sem höfðu samneyti við hermenn.

Gunnar Skarphéðinsson
Dróttkvæði ‒ Sýnisbók

Útgáfa: Skrudda

Mikilvægt og einkar læsilegt safnrit um dróttkvæði með greinargóðum útskýringum sem auðvelda lesendum nútímans að skilja bakgrunn og sögulegt samhengi þessarar bókmenntagreinar.

Haraldur Sigurðsson
Samfélag eftir máli – Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi

Útgáfa: Sögufélag

Stórvirki um sögu skipulags og hönnunar byggðar á Íslandi, og á erindi við bæði lærða og leika. Höfundur byggir á gríðarmiklu magni heimilda sem hann greinir og setur í stærra samhengi.

Helgi Máni Sigurðsson
Fornbátar á Íslandi – Sjómennirnir og saga þeirra

Útgáfa: Skrudda

Fróðleg kynning á bátasmíði og sjósókn í öllum landshlutum frá miðri 19. öld fram til 1950. Bókin byggist á heimildum um báta, eigendur þeirra og smiði. Hún er prýdd fjölda ljósmynda og teikninga.

Kristín Loftsdóttir
Andlit til sýnis

Útgáfa: Sögufélag

Vandað verk um tilurð og sögu safna á tímum nýlenduvæðingar og kynþáttahyggju. Höfundur rekur slóð forvitnilegra safngripa og miðlar rannsókn sinni á myndrænan og persónulegan hátt.

Lilja Árnadóttir og Mörður Árnason (ritstjórar)
Með verkum handanna ‒ Íslenskur refilsaumur fyrri alda

Úgáfa: Þjóðminjasafn Íslands

Óvenju glæsilegt verk sem kynnir stórkostleg textílverk sem unnin voru á Íslandi fyrr á öldum og skipa sess í alþjóðlegu samhengi. Byggist á viðamiklum rannsóknum Elsu E. Guðjónsson.

Ólafur Gestur Arnalds
Mold ert þú – Jarðvegur og íslensk náttúra

Útgáfa: Iðnú

Stórvirki á sviði náttúru- og umhverfisfræði með áherslu á sérstöðu íslensks jarðvegs. Fjallað er ýtarlega um mikilvægi moldarinnar í vistkerfum þurrlendis með ríkulegum gögnum og myndefni.

Ólafur Engilbertsson (ritstjóri)
Steyptir draumar – Líf og list Samúels Jónssonar

Útgáfa: Sögumiðlun

Mikilvæg útgáfa um líf og list merkilegs utangarðslistamanns og endurreisn einstakrar arfleifðar. Líflegt myndefni og vandaður texti.

Sveinn Einarsson
Leikmenntir ‒ Um að nálgast það sem mann langar að segja í leikhúsi

Útgáfa: Hið íslenska bókmenntafélag.

Leikhússaga síðustu aldar er rauður þráður bókarinnar sem fjallar um form, stíl, orðfæri og fleira tengt leiksviðinu. Verkið er mikilvæg viðbót við sögu íslenskrar leiklistar, og lýsir vel þeim galdri sem gerist þegar sýningar eru settar upp.

Þórgunnur Snædal
Rúnir á Íslandi

Útgáfa: Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Ýtarlegt og aðgengilegt yfirlitsrit um íslenska rúnasögu, sem varpar ljósi á hefð sem hélst frá landnámi til okkar daga. Afrakstur áratugalangra rannsókna höfundarins.

Materials