Vantar þig aðstöðu?
Í menningarhúsum Borgarbókasafnsins er í boði fjölbreytt aðstaða til að gera allskonar!
Til dæmis að:
- grúska í safnkostinum
- læra í ró og friði eða í hóp
- slaka á og lesa
- búa til hlaðvarpsþátt
- hitta aðra eða hanga með vinunum
- setja upp myndlistarsýningu
- halda fund, námskeið eða ráðstefnu
- hitta saumaklúbbinn eða leshringinn
- sníða og sauma föt og annað sem þér dettur í hug
- taka upp tónlist
- klippa myndband
- semja tónlist
- spila borðspil
horfa á kvikmynd, hlusta á tónlist eða lesa myndasögur
Ertu með góða hugmynd að nýrri eða bættri aðstöðu í menningarhúsum Borgarbókasafnsins? Sendu okkur þá línu á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is