
Nýtt bókasafnskerfi | Hvernig sæki ég um nýtt lykilorð fyrir Mínar síður og nýtt PIN?
Nú hefur nýtt bókasafnskerfi verið tekið í notkun á bókasöfnum landsins. Notendur hafa fengið sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig stofna eigi lykilorð til að skrá sig inn á Mínar síður hér á heimasíðunni borgarbokasafn.is.
Nýja lykilorðið er notað til að skrá sig inn áMínar síður: borgarbokasafn.is
Rafbókasafnið: rafbokasafnid.is
Leitir: leitir.is
Þetta virkar kannski flókið í fyrstu, en er í raun ofureinfalt!
Smellið hér til sækja um lykilorð. Setjið inn kennitölu (User ID) EÐA skráið netfang
- Fylgið þeim skrefum sem berast í tölvupósti
- Leggið lykilorðið á minnið
- Notið kennitölu og nýja lykilorðið til að skrá ykkur inn á Mínar síður
Einnig þarf að sækja um nýtt 4 stafa PIN númer fyrir sjálfsafgreiðsluvélarnar
Það er gert með einni af eftirfarandi leiðum:
- Undir Mínar stillingar á borgarbokasafn.is, þegar þú hefur skráð þig inn með nýja lykilorðinu.
- Undir Mínar síður á leitir.is þegar þú hefur skráð þig inn með nýja lykilorðinu.
- Í afgreiðslunni á bókasöfnum Borgarbókasafnsins.