upcycled glove monster

Fjöltyngd vettlingaskrímsli

Það var góð mæting á notalega síðdegisstund á borgarókasafninu í Kringlunni þar sem mörg tungumál voru töluð, meðal annars spænska, pólska, franska, enska og íslenska. Við hjálpuðumst að við að skreyta einmana vettlinga með gersemum og breyta þeim þannig í falleg vettlingaskrímsli, nýja vini sem fengu að koma með okkur heim.

3 glove monsters glove monster

Kakó Lingua viðburðir eru fyrir börn og fjölskyldur sem vilja brjóta tungumálamúrinn og skemmta sér saman í þægilegu umhverfi. Öll tungumál eru velkomin og við skemmtum okkur við að komast að sameiginlegum skilningi. 

Viðburðirnir eru alltaf ókeypis og öll eru velkomin! Endilega kíkið á næsta Kakó Lingua!

Sjá aðra Kakó Lingua viðburði HÉR.

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is

UppfærtMánudagur, 18. mars, 2024 13:33