Sigríður Jónsdóttir

Um þennan viðburð

Tími
20:00 - 21:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Fræðsla

Kvöldganga | Hinsegin sviðslistir í Reykjavík

Fimmtudagur 8. ágúst 2024

Hinsegin fólk hefur alltaf verið til. Einn af þeirra griðastöðum var leikhúsið. Í göngunni verður hulunni svipt af þessum hinsegin heimi og nokkrir vel valdir staðir skoðaðir með öðruvísi gleraugum en leikhúsgesturinn er kannski vanur að nota.

Sviðslistir eru órjúfanlegur hluti af menningarsögu Reykjavíkurborgar en undir yfirborðinu glittir í annarskonar og hinsegin heim. Leikar hófust með leiksýningum skólapilta í Latínuskólanum, síðar Menntaskólanum í Reykjavík, en þeir léku bæði kven- og karlhlutverk. Leikfélag Reykjavíkur ruddi brautina fyrir nútímaleikhúsi í Iðnó árið 1897 en árið 1975 steig fyrsti homminn í íslensku leikriti fram á sama leiksviði. Þjóðleikhúsið var stofnað 1950 og í annarri uppsetningu hússins steig ein þekktasta gamanleikkona landsins á svið en sú átti sambýliskonu til margra ára. Á sjöunda áratugnum fóru sjálfstæðir leikhópar að ögra borgaralegum hugsunarhætti og fyrsta lesbían birtist í einni slíkri uppsetningu, miklu fyrr en mörg grunar.

Sigríður Jónsdóttir er sérfræðingur við Leikminjasafnið á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni ásamt því að vera leikhúsgagnrýnandi Heimildarinnar.

Kvöldgöngur eru viðburðaröð sem Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur og Listasafn Reykjavíkur standa fyrir. Göngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum yfir sumarmánuðina, nema annað sé tekið fram. Lagt er af stað kl. 20 frá Borgarbókasafninu Grófinni, Tryggvagötu 15, í flestum tilfellum.
 

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115