Shilpa Khatri Babbar
Shilpa Khatri Babbar

Um þennan viðburð

Tími
15:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Fræðsla
Spjall og umræður

Indland í brennidepli I | Jóga hugtakið

Laugardagur 2. mars 2024

IN ENGLISH

Indland er eitt elsta siðmenntaða ríki heims. Indverjar hafa frá fornu fari ástundað ýmis konar jóga með áherslu á samþættingu líkama, hugar og sálar, sem er valdeflandi og byggir upp úthald hjá þeim sem stunda það. Shilpa Khatri Babbar fræðir okkur um jógahugtakið og hvað það felur í sér. 

Fyrirlesturinn fer fram á ensku. 

Shilpa er félagsfræðingur og hefur starfað sem háskólakennari í 25 ár. Hún hefur verið gestakennari og formaður indverskra fræða við Háskóla Íslands frá árinu 2022 á vegum ICCR – Indian Council for Cultural Relations. 

Shilpa heldur fyrirlestra í Borgarbókasafninu Grófinni, þrjá laugardaga í mars. Fyrir henni er Indland ekki einungis staður á landakortinu heldur líkt og perluband sem myndar þá andlegu, menningarlegu, félagslegu og heimspekilegu þætti sem hafa lagt grunninn að ævafornum siðum og hefðum sem enn eru við lýði í Indlandi. Í fyrirlestrunum mun hún kynna fyrir okkur jógahugtakið, indversku heimspekina að baki AUM, lækningakerfið Ayurveda og indverska matarmenningu. 

Næstu fyrirlestrar: 

Indland í brennidepli II | Indverska heimspekin að baki AUM og orka ómsins 
Laugardagur, 9. mars kl. 15:00 – 16:00 

Indland í brennidepli III | Allt um Ayurveda, framandi krydd og jurtir  
Laugardagur, 16. mars kl. 15:00 – 16:00 

 

Nánari upplýsingar veitir: 

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar 
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115 

Merki