Kaffistundir
FRESTAÐ Kaffi kviss | Mér er spurn
Mánudagur 15. febrúar 2021
Viðburðinum hefur verið frestað til 20. september n.k.
Guttormur Þorsteinsson bókavörður, margreyndur þátttakandi í pöbbakvissi, stýrir spennandi spurningakeppni í bókasafninu. Spurningar verða í öllum styrktarflokkum um allt milli himins og jarðar eða ákveðið þema allt eftir því hvernig vindurinn blæs þegar þar að kemur. Laufléttir vinningar eru í boði svo nú er lag að koma og spreyta sig og umfram allt hafa gaman!
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Nánari upplýsingar:
Jónína Óskarsdóttir
jonina.oskarsdottir@reykjavik.is s. 411 6250