people playing games

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 19:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Spjall og umræður
Tungumál

Spilum og spjöllum á íslensku

Miðvikudagur 11. maí 2022

Lærðu íslensku með okkur og hittu fleiri sem eru líka að læra - þátttaka er ókeypis. Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í að kenna íslensku sem annað mál. Við spilum orðaleiki, spjöllum og skemmtum okkur vel.

Við eigum spil fyrir öll þrep, leiðbeinendur aðstoða. Öll geta verið með, þótt þau tali ekki mikla íslensku!

Miðvikudaginn 11.maí fáum við til okkar sérstakan gest, Karítas Hrund Pálsdóttur, höfund bókanna Árstíðir – Sögur á einföldu máli (2020) og Dagatal – Sögur á einföldu máli (2022) sem kemur í búðir í lok maí. Dagatal er sjálfstætt framhald af Árstíðum sem hefur notið mikilla vinsælda og verið kennd á ýmsum skólastigum á Íslandi sem og erlendis. Bækurnar innihalda 91–101 stuttar og aðgengilegar sögur sem fjalla um siði og venjur á Íslandi. Sögurnar eru skrifaðar sérstaklega fyrir lesendur með íslensku sem annað mál (á getustigi A2 til B2 samkvæmt Evrópurammanum). Þær styðja þannig hvort tveggja við tungumála- og menningarlæsi.

Karítas Hrund PálsdóttirKarítas mun lesa upp úr bókum sínum. 

Leiðbeinandinn sem tekur á móti þátttakendum í Gerðubergi heitir Sigurður Hermannsson, málvísindamaður með brennandi áhuga á tungumálum og kennir íslensku sem annað mál. Sigurður (Siggi) stofnaði vefsíðuna https://www.icelandicmadeeasier.com til að allir sem vilja læra íslensku hefðu ókeypis aðgang að efni og tækjum. Þegar Siggi er ekki að kenna íslensku á bókasafninu eða í einkatímum heima hjá sér er hann líklegast að vinna í íslenskri orðabók wordreference.com í sjálfboðastarfi.

Facebook

Sigurður Hermannsson
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is