Ungmenni
Klúbbur I Fyrir Harry Potter aðdáendur 13-16 ára
Fimmtudagur 14. október 2021
Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 13-16 ára sem hafa brennandi áhuga á Harry Potter. Fyrsti fundur 23. september.
Í klúbbnum koma aðdáendur Harry Potters saman til að spila, spjalla, teikna, horfa eða bara allt það sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera sem tengist Harry Potter. Einnig verður boðið upp á skemmtilegar smiðjur, s.s. með Quidditch kennslu, tálgun töfrasprota, búningagerð o.fl.
Klúbburinn er á hverjum fimmtudegi kl. 16.30-18.00 í Gerðubergi í Okinu.
Athugið að einnig er klúbbur í Borgarbókasafninu Kringlunni fyrir 9-12 ára á miðvikudögum kl. 14.30-16.00.
Leiðbeinendurnir eru mestu Harry Potter aðdáendur safnsins og tökum við vel á móti öllum krökkum.
Það er auðvitað ekkert þátttökugjald en skráning er nauðsynleg.
Vinsamlegast skráið ykkur hjá:
Lilja Rut Jónsdóttir Deildarfulltrúi